Prófíll

  • Nafn: Brynjar Freyr Halldórsson
  • Netfang: brilli_6@hotmail.com
  • Staður: Glen Rock, Pennsylvania
  • Um mig: Drengur sem er í bandaríkjunum sem skiptinemi að lifa lífinu á fullu..

Auglýsing

Undirsíðukubbur

Goodbye America

25. júní 2008 klukkan 23:45
Já þetta mun vera mitt seinasta blogg hér í bandaríkjunum. Ég er að fara heim á þriðjudaginn næsta 1. júlí og lendi 2. júlí í keflavík. Sunnudaginn er svo sem seinasti dagurinn minn hérna í bænum. Ég þarf að vera mættur til Wilson Collage fyrir seinasta afs fundinn klukkan 5. Gat ekki valið verri tíma enda er úrslitaleikur EM klukkan 3! Öskrandi
Ég hlakka samt til að hitta alla íslensku skiptinemana aftur og koma heim á klakann.

Ég er búinn að upplifa mjög skiptar tilfinningar þessa daga. Ég hef verið að fá alveg hausverki í að hugsa að ég sé í alvörunni að fara heim og yfirgefa þennan æðislega stað. Þennan stað sem ég hef kynnst alveg ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki og stað þar sem virtist að allir hafa virkilega líkað vel við mann og verið góð við mig. Þetta er búið að vera hreint frábært ár og ég er mjög glaður að ég fór í þetta ferðalag. Ég er búinn að eignast mjög góða vini hérna og sambönd útum allan heim. Ég er mjög leiður við að fara heim en líka spenntur.

Heimkoman er svo sem ekki það versta, ég fæ loks að keyra aftur, hitta elskulegu fjölskyldu mína, vinina og njóta Íslands á sumartímanum.

Seinustu vikur hef ég aðallega verið að reyna að skemmta mér eins vel og ég get mögulega hérna. Ég fór til Ocean City í útskriftarferð sem var alveg ótrúlega gaman. Ströndin var mjög fín og næturlífið var þvílíkt fjör á ströndinni. Ég fór síðan í hinn fræga Hersay Park um daginn með vinum mínum og það var alveg geggjað. Elsti rússíbaninn í heiminum (the comet) að sögn vina minna þarna plús Hersay súkkulaðiverksmiðjan fræga.

Já seinustu dagar hafa verið æðislegir og nú er ég bara í því að kveðja liðið hérna og vinina. Ég fer allavega mjög glaður heim og ég á án efa eftir að sakna fólksins hérna mjög mikið. Takk fyrir góðu tímana USA!

hersay
Brynjar Freyr Halldórsson
Engin athugasemd

Graduation & Senior Week

06. júní 2008 klukkan 21:20
Jæja þá er maður loksins búinn að útskrifast eftir þetta rosalega erfiða skólaár hérna í bandaríkjunum. Tilhlökkunin var ótrúleg og fögnuðurinn var rosalegur. Athöfnin var mjög fín og skemmtileg, forsetar nemendafélagsins héldu ræðu um skiptinemana fjóra í skólanum og fékk ég voða mikinn fögnuð þegar talað var um mig. Mér leið eins og ég var mjög sérstakur Ullandi

Svo voru kastaðir nokkrir blakboltar á milli nemendanna á meðan ræðum stóð síðan fengu allir skjalið sitt afhent. Mjög skemmtilegt móment og ég var hæstánægður þegar ég fékk mitt. Svo var kastað höttonum upp í loftið og allir föðmuðu alla, mjög skemmtilegt móment.

Eftir veisluna fórum við svo heim þar sem okkur beið mexíkönsk veisla sem var matreidd af mömmu hreinsikonunni okkar. Maturinn var mjög ljúffengur og eftirá var haldið örlítið uppá viðburðinn. Þetta var mjög góður dagur.

Graduation

Ég er núna svo á morgun að fara í útskriftarferðina til Ocean City í Maryland og verð þar í viku.

Adios.
Brynjar Freyr Halldórsson
3 athugasemdir

New York & Prom

08. maí 2008 klukkan 00:47
Sæl veriði

Já ég hef ekki haft mikinn tíma til að blogga seinustu daga enda hefur mikið verið í gangi. Ég ákvað einn daginn að fara og hitta mömmu mína í New York þar sem hún ætlaði að vera þar í 10 daga. Ég tók því lest frá Baltimore á mánudeginum sem tók 2 og hálfan tíma og kostaði 105$ ekki meira né minna. Mætti í New York um 10 leitið og tók leigubíl uppá Hilton hótelið sem við gistum á. Ég verð að segja að ég var alveg endalaust spenntur þegar ég mætti á Penn Station lestarstöðinni í New York. Mig hefur alltaf langað til að fara til New York og loksins fæ ég tækifæri til þess að gera það og auðvitað með elsku mömmu minni Hlæjandi

Hún tók svo á móti mér á hótelinu þar sem við gistum á 62. hæð. Rosaleg lyftuferð btw. Mamma valdi hinsvegar ekki bestu vikuna kannski til þess að fara til New York en veðrið var ekki það besta. Fyrsta daginn var rigning allan daginn svo við tókum bara taxa til Mall í Queens þar sem við fundum eitt og annað. Þegar við komum heim fórum við á Modern Arts Museum til að kíkja á sýningu Ólafs Elíassonar sem var eiginlega við hliðina á hótelinu. Sýningin var nú ekki sú besta enda var helmingur sýningar Ólafs í öðru safni!
En hvað með það, þá fór ég með mömmu og fjórum vinkonum hennar á þennan yndislega kvöldverð sem hét Asia de Cuba. Mjög dýr en flottur og líflegur.
Eftir það fór ég og Mamma á Times Square sem var alveg rosalega flott. Æðislegt að sjá öll ljósin og allt actionið. Við fórum í M&M búðina og við fórum í Virgin búðina sem var með endalaust mikið af DVD myndum og fleira. Alveg magnað. Mæli með að sjá Times Square í fyrsta sinn að kveldi til.

Annan daginn tókum við öll rölt niður Broadway að kíkja á verslanir og borgina. Tíminn var naumur fyrir mig þar sem ég varð að sjá Manchester United - Barcelona leikinn sem byrjaði klukkan 2.45. Við náðum hinsvegar að taka góðan rölt og enduðum á því að ég og mamma fórum upp í Empire State bygginguna sem mig hefur alltaf langað til að gera og rosalega var það flott að sjá borgina af þessu háhýsi. Eftir það þurfti ég að skjótast til að ná leiknum og ég endaði á Írskum pöbb og horfði ég á meistaraliðið leggja Barcelona af velli.

Þriðja daginn eyddi ég bara deginum með mömmu og fórum við að skoða Central Park þar sem þetta var skársti dagur vikunnar. Já það kom í ljós að garðurinn er frekar stór og vorum við nokkuð áttavilt þegar við vorum í honum. Hann var samt mjög flottur og gaman að taka smá labb í gegnum hann. Eftir það tókum við lestina að Ground Zero og Wall St. Það var ekki mikið að sjá á Ground Zero nema byggingarverkstæði og áformin fyrir framtíðina. Við löbbuðum síðan niður og sáum styttuna af Nautinu fræga, síðan sáum við Frelsistyttuna í fjarska. Mjög töff að sjá þetta allt saman og merkilegt.

Fjórða daginn fór ég síðan heim, við ætluðum að reyna að versla eitthvað en ég var bara rosalega þreyttur og var ekki alveg í stuði til að draga töskurnar mínar fram og til baka. Þannig að ég kyssti bara mömmu bless og lagði af stað heim um 2 leitið.

New York

Prom!

Prom var seinasta laugardag. Dagurinn var ansi langur og byrjaði hann þegar ég fór með Cubbler til Jimmys þar sem átti að taka myndir af öllum hópnum. Við þurftum hinsvegar að bíða í smá tíma eftir hinum krökkunum og sérstaklega deitinu mínu, Viktoríu sem kom rétt áður en við ætluðum að leggja af stað. Ég pósaði því bara með félögunum á meðan og náði nokkrum góðum myndum þangað til að deitið kom svo við gátum smellt nokkrum saman.

Um 6 leitið var leiðinni haldið til ballsins. Limma var leigð og ekki ódýr en 100$ á mann og vorum við 8. Við fengum þó óvæntan glaðning en eitthver rosaleg Hummer limma kom og sótti okkur þar sem einhver ruglingur hefði verið með limmu fyrirtækinu. Það var bara skemmtilegra og gott að koma á Promið í sínu fínasta. Salurinn var allur voða fancy og allir í sínu fínasta pússi. Gaman að hitta vinina þarna og heilsa upp á stelpurnar. Maturinn var síðan borinn fram og ég fékk mér Steik með kartöflum sem var alveg ljúffeng á meðan sumir fengu sér kjúklinginn.
Eftir matinn var síðan dansað smá og kosið konung og drottningu. Því miður var ég ekki valinn en einhver félagslega vanheftur strákur vann sem var frekar fyndið. Eftir ballið var síðan kíkt í nokkur partý. Fyrst fór ég með strákunum í Post Prom Party í skólanum til að kíkja á matinn þarna og hvaðeina. Skömmu eftir það fór ég í partý hjá Mandy, kærustu vinar míns og eftir það fór ég til félaga míns Vince þar sem var djammað alla nótt. Það var helvíti skemmtilegt. Þetta var mjög fínt kvöld. Ég eyddi mjög miklum peningi í þetta samtals en þetta var góð minning.


Prom

prom
Brynjar Freyr Halldórsson
2 athugasemdir

Kosningar og lífið

23. apríl 2008 klukkan 03:16
Sæl veriði

Kosið var um forsetaefni Demókrata í dag hér í Pennsylvaniu. Því fannst mér svolítið viðeigandi að skrifa örlítið um það og reynslu mína á forsetakosningunum 2008 í bandaríkjunum.

Ég er ekki með neinn ákveðinn í huga akkúrat núna en ég hallast kannski aðeins meira gagnvart John McCain hjá Republikum eða Barack Obama hjá Demókrötum. McCain er þegar búinn að vera valinn sem forsetaefni Republikana og eins og flestir vita eru Obama og frú Clinton að berjast upp á líf og dauða um forsetaefni Demókrata. Clinton kom út sem sigurvegari í dag í Pennsylvaniu með 54% atkvæði á móti 46% Obama. Obama var með sláandi 92% fylgi blökkumanna í fylkinu. Þrátt fyrir það sigraði Clinton með meirihluta af hvítum og vinnumönnum í stóru iðnaðarborgum fylkisins eins og Pittsburgh og Scranton. Þetta gerir baráttuna ennþá meira spennandi fyrir þau tvö og lítur út fyrir að Clinton sé að saxa forskot Obama þétt og býtandi.


debate

Þetta stríð milli þeirra tveggja er samt að skaða fyrir forsetakosninguna í Nóvember því sagt er að 25% af stuðningsmönnum Clinton myndu kjósa frekar John McCain ef Obama væri forsetaefni Demókrata og að 22-23% stuðningsmanna Obama myndu ekki kjósa Clinton heldur McCain. Þannig að þessi blóðuga barátta er að hafa slæm áhrif. Demókratar eru einnig farnir að lýta á forsetaframbjóðurnar tvo sem of vinstri sinnaða og halda meðal annars að ný byssu lög og hjónaband samkynhneigðra yrði hugsanlega lögleitt um allt land. Það gerir að verkum að Demókratar eru farnir að líta aðeins á John McCain sem er sagður ekkert svo hægri sinnaður. Þess vegna voru Repúblikanar svona tregir við að staðfesta hann sem forsetaefnið sitt. Hann hefur haft mjög gott fylgi undanfarið og hefur hægt og bítandi verið að koma sér upp fyrir annaðhvort Obama eða Clinton í skoðanarkönnunum.

Ef ég væri bandaríkjamaður í dag yrði ég líklega Repúblikani þar sem mér finnst eins og Demókratar reyna of mikið að stjórna lífi fólks auk þess þá hafa Demókratar ávallt áætlanir um að hækka skatta fólks. Repúblikanar eru meira í því að fjölskyldur ættu að vinna fyrir eigin brauði og redda sér sjálft, með því þá hafa Repúblikanar lærri skatta. Ég tel að John McCain sé mjög rausnarlegur maður og hefur vit hvað á að gera varðandi Írak. Ekki bara pakka og fara heim heldur klára dæmið eins og hann vill. Hann ítrekar að hann hafi annað plan en Bush var með svo vonandi gengur honum vel með það ef hann verður kosinn í hvíta húsið. John McCain var einnig sá eini repúblikaninn sem hafði einhverjar áhyggjur af gróðurhúsaráhrifum sem ég tel vera mikilvægt þar sem bandaríkjamenn eru þeir verstu í heiminum hvað það varðar og það þarf að kenna þeim eitt og annað um endurvinnslu og orkunýtingu.


mynd

Ég tel að það er frekar óvíst hvað þú færð með Demókratana tvo. Ég hef trú á að Clinton sé gott dæmi um reiða húsfreyju sem vill að menn taki sig til og hreinsi húsið. Ég hef sagt að hún mun gera heimskuleg mistök ef hún verði forseti og ég vona nú bara fyrir hönd Íran að hún verði ekki forseti þar sem hún sagðist hóta þess að útrýma Íran allveg ef þeir myndu ráðast að Ísrael.
Obama hins vegar er mjög stórt spurningarmerki. Hann gæti komið út sem frábær forseti, hann talar mjög vel og ungt fólk hérna elskar hann. Flestir í skólanum væru mun hlynntari að sjá Obama sem forseta en Clinton. Hann hefur sterkan karakter, það er bara spurning hvort að plönin hans séu nógu skýr. Ég vona bara að Obama vinni forsetatilnefninguna í lokin og að McCain og Obama etji kappi í Nóvember næstkomandi.


fáni


Nóg með kosningarnar!

Ég hef verið að snúast í kringum marga hluti að undanförnu. Ég fór til Washington fyrir tveimur vikum á Spy Museum með skólanum. En þetta reyndist vera ágætis safn með alls kyns spæjara græjum frá James Bond, CIA leynistofunni, KGGB og hvaðeina. Síðan fengum við að labba um og sjá öll monumentin aftur sem var ágætt. Veðrið var frábært, um 20° hiti eins og það hefur verið seinustu daga.

Seinusta föstudag fór ég síðan á minn fyrsta hafnaboltaleik. En ég fór með Allison, Katie, Cubbler, Jeremy og Ian að sjá Baltimore Orioles etja kappi við New York Yankees. Leikurinn var betri en ég bjóst við þrátt fyrir að vera hægari en allt! Orioles tóku Yankees í bakaríið 10-2 og skoruðu eitthvað 8 stig eitt "inning" en hvert lið fær 10 "innings". Erfitt að útskýra þetta á íslensku enda ætla ég ekki að reyna. Þetta var allavega fín reynsla og einungis 5$ á völlinn það kvöld.
Laugardaginn hélt vinur minn, Ryan síðan kveðjupartý þar sem hann er á leiðinni til New Orleans í vikunni til að lifa þar héðan í frá. Hann er 20 ára kappinn og er mjög fínn vinur minn. Hann var sá eini sem þorði að spurja mig eitt kvöldið eftir nokkrar vikna dvöl mína hér hvort ég myndi hvað hann héti. Ég taldi mig muna það en fann það ekki alveg og hann sagðist heita Ryan og eftir það vorum við bara hinir fínustu vinir og ég á eftir að sakna hans.

Í gær hélt ég svo fyrirlestur um æðislega landið okkar Ísland fyrir framan einhvern kirkju saumaklúbb. Það var mjög vandræðalegt að byrja en smátt og smátt kom ég staðreyndunum á framfæri og talaði ég um Ísland í um 20 mínutur. Ég skemmti gömlu konunum virkilega og þær gáfu mér æðislegar kökur eftirá. Það var skemmtilegt að gefa til baka einhverntíman.

Held þetta sé nógu langt í bili. Vona að þið hafið haft gaman af þessu. Endilega Commentið!!!

ég og ryan

Ég og Ryan á laugardagskvöld

ég og emma

Emma sykurpúði og ég fyrir framan Washington Monument

ég + stelpur

Shannon, Jess, Ég og Emma í þessum stórskemmtilega símaklefa :D
Brynjar Freyr Halldórsson
6 athugasemdir

Whats goin on?

06. apríl 2008 klukkan 19:47
Jæja mér leiðist alveg rosalega þannig ég ákvað að smella einu bloggi á þetta!

Helgin er búin að vera frekar fjörug. Foreldrarnir eru í Florida akkúrat núna og skildu þau okkur Ian og Simon eftir þannig við gátum gert hvað sem við vildum. Ég og Ian tókum nett djamm þessa helgi á meðan Simon sem er 25 ára spilaði Rainbow Six eins og alltaf. Já veðrið hérna er að mjög fínt þessa dagana. Manni líður eins og það sé júní á Íslandi þar sem veðrið er í 10-15 gráðunum. Ég hlakka alveg rosalega til að fá að fara á ströndina og baða mig í sólinni Svalur

Seinustu daga hef ég aðallega verið að spila körfubolta, horfa á United rústa Roma í meistaradeildinni og taka strákana í bakaríið í pool. Ég get ekki sagt að ég sé neitt að rústa þeim í körfunni þar sem þeir eru flestir með eigin körfu í bakgarðinum sínum, erfið samkeppni.

En já ekki nema 3 mánuðir þangað til að ég kem heim. Kominn tími til að skipuleggja komupartýið. Ég veit ekki alveg hvað ég geri varðandi vinnu þannig ef einhver getur reddað mér djobbi þá væri það geggjað!

Næsta fimmtudag er ég að fara til Washington með skólanum að kíkja á einhver söfn og skemmtilegheit :P Verst að MP3 spilarinn minn sem ég fékk aftur fyrir nokkrum vikum er ónýtur þar sem skjárinn brotnaði Fýldur
Ég kem kannski með blogg um það. Þetta var ekkert rosalegt blogg ég veit, en mig langaði bara að láta heyra í mér.

ps. þetta með lækkun krónunnar er ekki mjög gott fyrir mig, ég þarf að borga meira núna þannig ef þið getið styrkt hana, that would be greeeat!

office space
Brynjar Freyr Halldórsson
3 athugasemdir

Páskablogg :D

23. mars 2008 klukkan 00:11
Ætla  bara að byrja á að afsaka bloggleysið en til afsökunar þá skrifaði ég blogg seinustu helgi en ég fór út og talvan fór á stand by og þegar ég ýtti á "staðfesta"  þá  sagði bloggsíðan að ég væri ekki skráður inn. Svekk! Sama gerðist tveim dögum seinna þegar ég ýtti óvart á "Back" takkan. Tvöfalt svekkelsi Ullandi

En nóg um það vesen. Páskarnir eru á morgun og maður vaðar í sælgæti hérna. Það er til eitt rosalega gott nammi sem heitir "Peeps" en það eru sykraðir marshmallows púðar sem lýta út eins og páskaungar. Mjög sætt. Ég er akkúrat núna að njóta eitt stysta páskafrí ævi minnar en eini frídagurinn minn var föstudagurinn langi. Við áttum að fá annan í páskum frían líka en þeir ætluðu að nota þann dag til að "make up a snowday". Algjört rugl!

Það er svo sem ekki neitt mikið að frétta af mér nema það að fótboltamótið innanhús kláraðist seinasta fimmtudag. Þá var úrslitakeppnin og kepptum við þrjá leiki. Við áttum góða möguleika á að fara alla leið og vinna keppnina þar sem við enduðum í öðru sæti í deildinni. Leikirnir voru 25 mínutur og er keppt 6v6 á velli sem er kannski aðeins stærri en  litlu sparkvellirnir heima. Fyrsta leikinn unnum við naumlega 4-2 þar sem við lentum 2-1 undir eftir 15 mínutur en ég náði að jafna með laglegu marki og setti það tóninn fyrir hin mörkin. Ég spilaði striker og er mjög duglegur í að elta boltann og stela boltanum af andstæðingnum. Það er óhætt að segja að bandaríkjamennirnir kunna varla að höndla smá öxl í öxl því þeir fljúga alveg þrátt fyrir að vera töluvert eldri en maður.

Annan leikinn spiluðum við á móti næst besta liðinu á mótinu en það var lið sem við gerðum jafntefli 2-2 á móti. Við byrjuðum frekar brasarlega og lentum undir 1-0. Við komum til baka samt og náðum að jafna og það voru einhverjar 10 mínutur þegar ég kom okkur yfir með alveg mjög spes marki en boltinn svona sveif yfir vítateignum og markmaðurinn náði ekki til hans og klessti á mig en ég tók hann á kassann og potaði honum í netið, þetta var svona mark sem maður fær fyrir að vera duglegur. Markmaðurinn sem var einhver rosa nagli og með hanakamb greip í mig eftir markið og tosaði mig alveg niður og hélt mér. Þetta var svo rosalega mikið gult spjald á hann og vinur minn Zach kom að honum og ýtti honum frá mér. Zach reyndar kíldi hann víst léttilega haha og markvörðurinn manaði hann í slag. Það var ekki alveg í spilunum fyrir Zach að slást við 30 ára gamlan pönkara og við löbbuðum í burtu. Markmaðurinn fékk ekkert spjald sem hefði sent hann útaf í 3 mínutur sem mér fannst alveg fáranlegt en við komumst yfir allavega. Spennan magnaðist og vildi svo til að hitt liðið jafnaði leikinn þegar ég var útaf. Alveg rosalega svekkjandi. Jeremy félagi minn skoraði svo laglegt mark sem kom okkur aftur yfir á ný og þegar ég kom aftur inná lagði ég seinasta mark upp fyrir Zach sem kom okkur í 4-2 með eitthverjar 4 mínutur eftir. Hitt liðið minnkaði muninn og voru seinustu mínuturnar alveg rosalega spennandi þar sem ég var ekki inná en vörnin hélt og við komumst í úrslitaleikinn.

Í úrslitaleiknum kepptum við svo við liðið sem var í fyrsta sætinu í deildinni og við töpuðum fyrir þeim 7-4 í leik okkar á tímabilinu. Þetta var sem sagt lið þjálfaranna en þarna var fótbolta þjálfarinn þeirra frá seinasta ári og  núverandi þjálfarinn þeirra ásamt þjálfara stelpnanna. Þeir voru með svo 2-3 tvítuga gaura sem voru mjög íþróttalegir. Leikurinn var mjög jafn allan tímann og ég átti erfitt með að brjóta vörn þeirra á baki. Ég lenti reyndar í því veseni að vera rekinn útaf í 3 mínutur útaf því að ég ýtti einum þjálfarunum niður. Þetta var algjört kjaftæði, þetta hefði átt að vera aukaspyrna en spjald var bara bull! Maðurinn var bara minni og léttari en ég og lét sig detta. Í fyrri leik okkar þá negldi ég sama manninn niður tvisvar mjög harkalega en komst upp með það en í þetta skiptið þá var dómarinn alveg útúr kortinu. Eftir að við vorum með full mannað lið þá kom Jimmy sem hafði verið að spila svolítið meiddur með boltann frá miðju og þrumaði honum í markhornið. Alveg fáranlegt mark og við alveg Yess! Með 10 mínutur eftir þá setti hitt liðið mun meirri pressu á okkur og við sluppum með skrekkinn nokkrum sinnum áður en að hitt liðið jafnaði þegar tvær mínutur voru eftir! Alveg rosalega svekkjandi. Þannig að leikurinn fór í framlengingu sem var golden goal í 5 mínutur. Við komumst nálægt því að skora tvívegis en heppnin var ekki með okkur og þurfti leikurinn að fara í vító. Þessi vítaspyrnukeppni var svipuð og hokkí þar sem þú rekur boltann frá miðju og ert bara 1on1 á móti markverðinum. Við vorum nú með einn efnilegasta markvörðinn í landinu, hann Jesse er alveg rosalegur. Hitt liðið átti fyrstu spyrnuna og náði Jesse að verja til hliðar en gæjinn náði frákastinu af veggnum og skoraði sem var alveg fáranleg regla. Nú jæja þá fór Zach að miðju og rak hann boltann og skaut í slánna og náði ekki frákastinu. Þá var það bara allt búið, við fengum bara eina spyrnu af einhverri ástæði og við þurftum að sætta okkur við annað sætið.
fóbo


Ég var svo sem ekkert svo svekktur, ég skemmti mér konunglega að spila með strákunum og gaman að sjá hversu vel ég spilaði. Þeir sögðu mér allir "afhverju í andskotanum spilaðiru ekki með okkur í staðinn fyrir amerískan fótbolta?" og ég sagði "ég hef ekki hugmynd!". Ég held ég hafi staðið við stóru orðin þegar ég sagðist vera betri en Anders frá danmörku í fótbolta og líklega hefði ég getað verið í byrjunarliðinu. En svona er þetta. Það er alltaf næsta síson ;)


Gleðilega páska elskurnar!Hlæjandi
peeps
Brynjar Freyr Halldórsson
2 athugasemdir

Presidents Day

19. febrúar 2008 klukkan 00:06
Þar sem mér leiðist alveg rosalega akkúrat núna þá ákvað ég að henda einu nettu bloggi inn.

Í dag er frídagur í skólanum þar sem það er presidents day. Dagurinn er til að minnast George Washington sem var ágæru gæji. Fínt að fá frí og sofa út. Á morgun fer ég reyndar ekki í skólann því það er "Senior skip day". Þá ákveða allir útskriftarnemendur skólans að sleppa  hundraðasta og áttunda deginum. Hann átti að vera seinasta fimmtudag en vegna þess að það skólanum var cancellað þriðjudag og miðvikudag vegna snjó, þá var hann færður til. Já alveg rosalega skemmtilegt..

Ég vildi að ég væri með eitthvað meira spennandi til að segja frá. Næstu helgi er ég að fara til Philadelphia að kíkja á félaga mína í hljómsveitinni 27 lights að spila. Ég hélt upp á valentínusardag í fyrsta skiptið og bauð Emily út að borða og gaf henni mjög sætan bangsa. Það var mjög sætt að sjá alla fá þessi blóm og nammi.

Veðrið hérna hefur verið ekkert rosalegt. Það snjóar mjög sjaldan hérna og ef það snjóar þá þarf það endilega að rigna daginn eftir.. mjög svekkjandi. Það eru samt mjög fínar snjóvélar í fjallinu sem við förum á bretti þannig ég reyni að fara eins oft og ég get. Í gær fórum við í smá úða bara til að vera solldið "badass" og það var fínt. Ég orðinn þokkalega góður á railum og boxum núna, get neglt boardslide alveg. Ætlaði að taka mynd af mér negla eitt rail um daginn en myndavélin frosnaði eftir tvær ferðir eða álíka. Solldið svekkjandi. Ég náði þessari ágætu mynd hinsvegar.

brynjaaaa

Já ég elska svo Burton snjóbrettið mitt. Rosalega létt og toe strap bindingarnar eru vel að meika það. Er klárlega einn besti riderinn í skólanum. Ég og einn annar félagi minn.

Svo er ég að spila smá innanhúsfótbolta með félugunum sem voru í soccer liðinu í skólanum. Við erum að spila gegn eldri köllum og taka þá í bakaríið eins og íslendingurinn orðaði það. Við erum búnir að vinna alla fjóra leikina. Ég hef bara spilað tvo vegna afmælisveisla og þessháttar. En við spiluðum á laugardaginn á móti einhverjum peyjum sem ég tók sundur og saman og skoraði tvö mörk ásamt lét þá vel finna fyrir því þar sem þeir voru ekki að spila það heiðarlega. Einn ætlaði bara að drepa mig eftir að ég negldi honum í vegginn en hann kældi sig. Unnum leikinn 8-3 og var ég markahæstur. Mjög gaman að spila fótbolta með strákunum því þeir eru nokkuð veginn á sama leveli og ég fyrir utan það að þeir spila ekki jafn fast og ég.

Annars er allt gott að frétta af mér. Drullið ykkur svo að commenta fólk og segja mér eitthvað skemmtilegt!
Brynjar Freyr Halldórsson
5 athugasemdir

Superbowl & Washington!

04. febrúar 2008 klukkan 21:19
Sælar frændur og frænkur!

Seinasta föstudag spurði félagi minn Vince hvort ég og Ian værum ekki til í að kíkja til Washington yfir helgina til að heimsækja bróðir hans í Georgetown, sem er víst einn besti skólinn í bandaríkjunum og er ógeðslega dýr! 50.000$ fyrir árið! En bróðir hans, Hayes fékk fullan skólastyrk frá skólanum svo maður veltir því fyrir sér hversu gáfaður drengurinn er. Allavega þá tók ferðin einungis tvo tíma og þegar komið var hittum við kærustu hans og herbergisfélagann hans og við spiluðum öll hinn æsiskemmtilega leik "Rockband" sem er frá "Guitar Hero" gæjunum en það er hægt að spila trommur og syngja og allur andskotinn. Síðan eftir það fórum við í nokkur háskólapartý á campusinu sem voru asskoti skemmtileg.

Laugardaginn ákváðum við svo að kíkja á öll "túristastöffið" í Washington eins og Lincoln styttan, Washington monument, hvíta húsið og fleira. Það var mjög flott að sjá í fyrsta skiptið en ég nenni varla að fara aftur að sjá það. Once in a lifetime experience held ég. Borgin er samt mjög fín. Við fengum alveg frábært veður. Myndi giska á svona 10° hita. Það kom mér samt á óvart að það var ekki mikið af fólki þarna. Frekar tómt, vissulega túristar á túristastöðunum en þar sem það var laugardagur var rosalega rólegt.
Kvöldið var það bara líkt og á föstudag.. "Rockband" og háskólapartý. Við skemmtum okkur alveg konunglega og þetta reddaði helginni. Við fengum alveg ljúffengan mat á meðan við vorum í Washington. Ég fékk eina rosalega burrito frá Chipotle, rosalega ljúffenga BBQ vængi frá Wingo's og svakalegan hamborgara á einhverjum stað :P

Vince, ég og Ian

töffarar!

Svo sunnudaginn var hátíðisdagurinn Superbowl Sunday

Superbowl

Það vildi svo skemmtilega til að liðið mitt, New York Giants var að spila á móti hinu óstöðvandi og ósigraða liði New England Patriots.

Patriots áttu náttúrlega að taka Giants í bakaríið og vinna með +14 stigum. En nei nei, Giants var liðið á endanum sem sigraði golíat og ég var ekkert smá ánægður. Alveg mögnuð tillfinning. Alveg æðislegt að vera hérna í bandaríkjunum þegar liðið mitt vinnur akkúrat Superbowl. Tja það er nú eitthvað...

Ég fór til Griffins félaga míns að horfa á leikinn ásamt fullt af fólki. Flest engir rosalegir fótbolta áhugamenn, hvað þá Giants en ég gaf öllum high "5" eftir leikinn. Það sem einkenndi veisluna var maturinn. Alveg endalaust mikið af vængjum, pizzum og chips haha. Mjög nice.

En já allt gott að frétta af mér og eins og áður sagt mjög sáttur með úrslitin :D

Go Giants!
Brynjar Freyr Halldórsson
1 athugasemd

AFS church camp

21. janúar 2008 klukkan 22:48
Sæl og blessuð. Seinustu vikur hafa ekkert verið rosalega viðburðaríkar. Ég er aðallega búinn að reyna að fara á Snjóbretti eins oft og ég get, hef farið 6 sinnum á árinu sem er ágætt. Ég ætla að fara með cameruna upp næst þegar ég fer til að taka myndir og sýna ykkur á þessari æðislegu blogg síðu.

afs

AFS CAMP: seinustu helgi var ein af þremur æðislegu skiptinema hittingum. Eftir 5 klukktíma svefn á föstudag vaknaði ég klukkan 8 á laugardegi til mikillar ánægju.. Ég var sóttur af fjölskyldu Yuri klukkan 9 og keyrt var í 2 tíma til Halifax í kirkjubúðirnar ágætu.

Það var mjög fínt að hitta allt liðið á ný. Fólk frá löndum alls staðar í heiminum. Það var gaman að sjá fólk sem var með mjög takmarkaðan orðaforða í fyrstu búðunum getað haldið samræðum uppi. Fólk sagði samt að ég væri með besta takið á enskunni
Ullandi

Sem betur fer vorum við inni allan tíman og þurftum ekki að fara út í leiki eins og í seinasta skiptið enda var -3° úti oftast. Við eyddum mestum tímanum í að tala saman um hitt og þetta og hin ýmis vandamál sem fólk á. Sem betur fer er ég ekki með nein vandamál. Mér fannst ekkert rosalega áberandi af vandamálum hjá hinum skiptinemunum en það voru hin og þessi til dæmis.. ohh ég þarf alltaf að fara í kirkju á hverjum sunnudag eða ohh ég fæ aldrei nægan tíma í baðherberginu.. Bara eitthvað sem er hægt að redda!

Þetta var annars frekar leiðinleg helgi, það var ekki mikið hægt að gera þarna og þar sem ég er svo ánægður hérna þá hef ég ekkert miklu að deila frá nema um þetta daglega.

Annað í fréttum: Liðið mitt í NFL deildinni New York Giants eru á leiðinni í SUPERBOWL sem er úrslitaleikurinn í NFL deildinni þannig það eru stórtíðindi og ég var alveg endalaust ánægður í afmælisveislunni sem ég fór í gær þegar Giants vann í framlengingu.
Hlæjandi



Kveðja frá USA!
ps. setti inn myndir frá búðunum á MYNDIR
Brynjar Freyr Halldórsson
1 athugasemd

Jól n stuff

07. janúar 2008 klukkan 01:06
Góðan daginn, ég veit ég er ekki búinn að blogga í mánuð en ég hef ástæður. Það er aðallega útaf því að ég búinn að vera upptekinn við hinu og þessu, fara ti Florida á ströndina, á bretti svo hafði ég bara ekki hugmynd hvernig ég ætti að henda þessu öllu saman í eitt blogg en ég ætla að reyna mitt besta. Saklaus

Florida : Ferðin byrjaði föstudagskvöldið 21. desember. Við ætluðm að leggja af stað klukkan 12 að kveldi til og vorum það við þrír ég, Ian og Harry (host dad) sem lögðum í 18 klukkustunda akstur til Sarasota í Florida. Ferðin byrjaði alveg hræðilega en eftir hálftíma náði vindurinn að rífa hlífina sem var yfir skottið á pikkupp jeppanum svo að við misstum 2 gjafir þar (þ,a.m. gjafin mín til Jyl) þannig að það var frekar súrt. Það stoppaði okkur samt ekki og við héldum áleiðis til Florida. Þá komum við loksins á áfangastað um 7 leitið að kveldi til í Sarasota. Mjög gott að vera kominn áleiðis og sjá þetta risa sumarhús sem þau eru með hérna. 3 hæðir og 5 svefnherbergi. Næstu tveir dagar fóru aðallega í að sækja fólk af flugvöllum og hanga á ströndinni en ég og Sophea keyrðum í tvo og hálfan tíma til Orlando á 23. desember.

Það var alveg voðalega ánægjulegt að sjá mömmu og stóra brósa á ný eftir nær 5 manuða fjarveru.
24. aðfangadagur. Málið með ameríkanann er að hann heldur eiginlega ekki upp á jólin á 24. desember heldur á jóladag. Harry og Jyl (host foreldrarnir) ákváðu samt sem áður að halda smá veislu og ég man ekki alveg hvað var í matinn en mig minnir að það hafi verið frekar ljúffengt. Svo ákváðu þau að opna pakkana klukkan 11 um kvöldi mér til mikillar ánægju þar sem ég var ekki alveg að meika það að bíða til morguns. Ég fékk meðal annars : utanliggjandi harðan disk, Giants treyju, strandar handklæði, bangsa, 2 netta boli, leik á NFL leik og svo íslensku landsliðstreyjuna sem mamma gleymdi á íslandi Óákveðinn

Jólin voru sem sagt ágæt. Maður fékk samt ekki alveg jólafílinginn í 25° hita í Florida hehe.



Næstu dagar voru oftst eytt á ströndinni. Ströndin á staðnum sem við vorum á í Sarasota var alveg mögnuð. Sandurinn var eins mjúkur og bómull, plús það þá er hann hvítur svo hann verður ekki heitur. Svalur


Carolina Panthers v. Tampa Bay Buccaneers:
Þar sem mig hefur alltaf langað til að fara á NFL leik þá spurði ég bróðr minn hvort hann væri ekki til í að kíkja á einn með mér í Tampa þar sem við værum einungis í klukkustund fjarlægð. Jújú sagði hann og ákvað hann að gefa mér miðann í jólagjöf Hlæjandi
Sunnudag 30. desember lögðum við svo af stað eldsnemma klukkan 10.30 því við vildum örugglega vera komnir á tíma og svo vildi ég líka skoða þetta skemmtilega "Tailgate" partý sem þeir eru með hérna fyrir hvern einasta leik. Ég kom með frekar miklar væntingar en vá hvað þetta var frábær ferð. Allt þarna var svoooo risastórt. Völlurinn var alveg HUGE þó svo að þetta sé ekki næstum því einn stærsti í deildinni. Tailgate partíin voru öll mjög flott. Fólk lagði bara pick-upinum sínum og henti upp grillinu og með nokkra öllara í kælinum. Þá voru menn asskoti brattir.

ég á leiknum

Leikurinn skipti ekki neinu máli því miður þar sem þetta var seinasta leikja vikan í NFL deildinni og Tampa var þegar komið í úrslitakeppnina á meðan Panthers rétt misstu af úrslitakeppninni. Tampa hvíldi því flesta byrjunarleikmennina sína og reyndu á unga og óreynda. Carolina hinsvegar spilaði með alla starterana og voru staðráðnir í að taka Buccaneers í bakaríið. Við fengum þessi fínustu sæti af netinu á 140 dollara. Sætin voru í efri stúkunni alveg á 40 yarda línunni þannig við vorum með gott yfirsýn yfir völlinn og við sáum allt hvað var að gerast og frekar vel.

Leikvangurinn var alveg magnaður. Það þekktasta við leikvang Buccaneers er sjóræningjaskipið sem er fyrir aftan eitt markið. Það skýtur nefnilega fallbyssuskotum í hvert skiptið sem Buccaneers skora stig.

Leikurinn var bráðfjörugur og jafn alla leið þangað til Buccanners tapaði boltanum þegar up 2 mínútur voru eftir. Panthers endaði á því að vinna 31-23. Það var alveg rosaleg reynsla að sjá þetta með eigin augum og sjá allt þetta "show" sem þeir setja upp í leiknum. Ég fór heim mjög sáttur.



Því miður þurti ég því að fara heim til Pennsylvaniu seinna þennan dag og skildi ég mömmu og Ásgeir eftir um áramótin. Ég var ekki beint ánægður en hvað getu litli íslenski skiptineminn svo sem sagt?

Áramótin voru freka spes. Ég kom til Pennsylvaniu um miðjan dag og það var lítið annað í boði en að skella sér á Wendy's hamborgarabúlluna og fá sér hamborgara og franskar. Ian og ég ákváðum svo bara að halda smá partí fyrir fólk þar sem allir skemmtu sér konunglega. Þegar kúlan í New York fór niður var allt klikkað og það var alveg rosalegt. Ég mæli samt meira með að eyða áramótunum á Íslandi. Hérna fær maðu verstu flugelda í heimi! Alveg glatað.

Jæja ég vona að ykkur fannst þessi færsla vera skemmtileg
Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár! Hlæjandi

ps. þakka fyrir allar æðislegu jólagjafirnar sem ég fékk. Bíð spenntur einnig eftir að fá treyjuna mína mamma eftir að þú gleymdir henni á íslandi
Glottandi
Brynjar Freyr Halldórsson
4 athugasemdir